UM OKKUR
Skilaboð frá eiganda Fallgegrar húðar
Ég kynntist þessum frábæru rauðljósavörum frá danska fyrirtækinu CTS í gegnum hestana mína. Við höfum verið með infrarauðar vörur fyrir hesta til sölu á Brokk.is og árangurinn er hreint út sagt frábær! Ég ákvað því að prófa andlitsgrímuna frá sama framleiðanda. Fyrst þetta virkar svona vel á bólgur og sár á hestum, því ekki að prófa á andlitið. Ég fann að húðin varð strax stynnari og fallegri ásýndar og ákvað að nú væri tími fyrir Íslendinga að fá að njóta líka. Það er ótrúlegt hvað markaðurinn er fullur af vörum sem lofa öllu fögru – en skila oft svo litlu. Þess vegna er ég svo glöð að geta loksins boðið upp á infrarauðar húðvörur sem eru klínískt vottaðar, þróaðar af dönskum húðlæknum og vísindamönnum og sem virka í alvöru!
Við erum öll falleg á okkar einstaka hátt og við eigum það skilið að dekra við okkur.
Vona að þið njótið vel 🖤